Jul11

Í sumar ætla ég að halda tónleikaröð í þremur litlum kirkjum hér á norðanverðum Vestfjörðum.

Aðrir tónleikar raðarinnar verða haldnir í hinni afskekktu Hraunskirkju í Keldudal í Dýrafirði.

Keldudalur var eitt sinn iðandi af lífi en fór í eyði árið 1987. Um tíma stóð til að rífa kirkjuna, en Þjóðminjasafn Íslands sá til þess að frekar yrði ráðist í viðgerðir á henni. Kirkjan er núna í vörslu safnsins og er yfirleitt lokuð almenningi - þannig að áhugafólk um eyðidali og sveitakirkjur (eins og ég) ættu ekki að láta þennan viðburð framhjá sér fara.

Þetta verður einfalt: rödd, víóla og gítar. Það er lengi búið að vera draumur hjá mér að spila í þessari fallegu kirkju sem er svo rík af sögu þannig að ég hlakka mikið til.

ATH! Hraunskirkja í Keldudal er í um 15 km akstursfjarlægð frá Þingeyri, út Dýrafjörðinn (sunnanmegin í firðinum). Það er hvorki salerni, rennandi vatn né rafmagn á staðnum.

Miðaverð: 2.500.- Miðasala á staðnum.

Share