Ásta er klassískt menntaður víóluleikari frá Royal Danish Academy of Music og hefur komið fram sem einleikari með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Þar að auki hefur hún getið sér gott nafn sem söngvaskáld og vakið athygli fyrir einstaka rödd og hjartnæmar og persónulegar lagasmíðar. Fyrsta plata Ástu Sykurbað (2019) var valin plata ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum, en Ásta hlaut jafnframt tilnefningar fyrir lag ársins (Sykurbað) og sem söngkona ársins.

Hún hefur komið fram á fjölmörgum tónleikum og tónlistarhátíðum, þar á meðal Iceland Airwaves og Þjóðlagahátíð Siglufjarðar, þar sem hún hefur vakið athygli fyrir náinn og áhrifaríkan flutning á tónlist sinni.