Blokkarbarn

05.09.25.

Blokkarbarn, önnur breiðskífa Ástu í fullri lengd, á rætur sínar að rekja í gamlar kasettuupptökur frá árinu 1997 þar sem Ásta - þá aðeins eins og hálfs árs - syngur og spjallar við föður sinn. Kasettan átti fastan samastað í hljómflutningsgræjum heimilisins, og líkt og myndaalbúmin sem við dustum rykið af annað slagið var kasettan heimsótt við tækifæri. Með tímanum varð hún órjúfanlegur hluti af minningum Ástu og hefur fylgt henni síðan.

Í gegnum þessar upptökur og nýjar tónsmíðar glímir hún við tilfinninguna að snúa aftur heim eftir langan tíma, horfast í augu við breytingar og endurskilgreina hvað „heima“ þýðir.

Ásta vann plötuna í samstarfi við upptökustjórann Árna Hjörvar og einblíndu þau á að skapa plötunni sérstöðu með því að nota víóluna á sem fjölbreyttastan hátt. Fyrir vikið er hljóðheimur plötunnar framsækinn og oft ögrandi en alltaf hlýlegur og heimakær.

Blokkarbarn markar jafnframt persónuleg tímamót fyrir Ástu. Eftir að hafa stundað klassískt tónlistarnám frá þriggja ára aldri, þar sem nákvæmni og agi voru í fyrirrúmi, fór hún að fjarlægjast víóluna og upplifa hljóðfærið sem heftandi. Víólan kemur þar af leiðandi ekkert við sögu á fyrstu plötu Ástu, Sykurbaði, en þegar upptökur á Blokkarbarni hófust tók hún hikandi með sér víóluna í stúdíóið, þrátt fyrir flókið samband við hana. Í gegnum ferlið opnaðist nýr heimur, þar sem hún fékk að nálgast hljóðfærið á eigin forsendum - með frelsi og sköpunargleðina í fyrirrúmi. 

“Í barnslegum söng mínum á kasettunni heyri ég sakleysi og sköpunargleði sem klassískt nám komst langt með að kæfa. Á Blokkarbarni hefur mér tekist að tengjast stelpunni á kasettunni aftur”, útskýrir Ásta. 

Blokkarbarn er aðgengileg á öllum helstu streymisveitum og í 100 handnúmeruðum vínyl­eintökum.

Ástarlag fyrir vélmenni

15.08.25.

Síðasta smáskífa plötunnar Blokkarbarn.

Lagið varð til í kjölfar þess að Ásta sleit sig lausa úr ofbeldissambandi og ber einstakur hljóðheimur þess merki. Um er að ræða europoppskotið táradiskó fyrir víólu og orgel:  „Ég vissi að ég vildi búa til tryllt danslag sem ég myndi elska að dansa við,“ segir Ásta, „við Árni Hjörvar stigum bæði langt út fyrir þægindarammann í þessu ferli, en það var svo sannarlega þess virði.“

Sykurbað (2019)

Fyrsta breiðskífa Ástu í fullri lengd.

Plata ársins í flokki þjóðlagatónlistar á Íslensku tónlistarverðlaununum árið 2019.

Einnig var Ásta tilnefnd sem söngkona ársins og fyrir lag ársins (Sykurbað).