“★★★★★”
— Ragnheiður Eiríksdóttir um Sykurbað, Morgunblaðið
“Sykurbað er með betri plötum sem ég hef heyrt á árinu.”
— Arnar Eggert, RÚV
Í sumar ætla ég að halda tónleikaröð í þremur litlum kirkjum hér á norðanverðum Vestfjörðum.
Aðrir tónleikar raðarinnar verða haldnir í hinni afskekktu Hraunskirkju í Keldudal í Dýrafirði.
Keldudalur var eitt sinn iðandi af lífi en fór í eyði árið 1987. Um tíma stóð til að rífa kirkjuna, en Þjóðminjasafn Íslands sá til þess að frekar yrði ráðist í viðgerðir á henni. Kirkjan er núna í vörslu safnsins og er yfirleitt lokuð almenningi - þannig að áhugafólk um eyðidali og sveitakirkjur (eins og ég) ættu ekki að láta þennan viðburð framhjá sér fara.
Þetta verður einfalt: rödd, víóla og gítar. Það er lengi búið að vera draumur hjá mér að spila í þessari fallegu kirkju sem er svo rík af sögu þannig að ég hlakka mikið til.
ATH! Hraunskirkja í Keldudal er í um 15 km akstursfjarlægð frá Þingeyri, út Dýrafjörðinn (sunnanmegin í firðinum). Það er hvorki salerni, rennandi vatn né rafmagn á staðnum.
Miðaverð: 2.500.- Miðasala á staðnum.
Í sumar ætla ég að halda tónleikaröð í þremur litlum kirkjum hér á norðanverðum Vestfjörðum.
Lokatónleikarnir verða haldnir á verslunarmannahelginni í Sæbólskirkju á Ingjaldssandi.
Ingjaldssandur er einn af þessum stöðum í heiminum sem mér finnst erfitt að lýsa með orðum. Fegurðin er svo mikil og orkan er svo sterk.
Þetta verður einfalt: rödd, víóla og gítar. Ég hlakka til að halda mína fyrstu tónleika á Ingjaldssandi.
Sæbólskirkja er rétt tæplega 100 ára gömul, hönnuð af Guðjóni Samúelssyni og var ein af hans fyrstu kirkjuteikningum.
Miðaverð: 2.500.- Miðasala á staðnum.
astakristinpjetursdottir@gmail.com
+354 856 5496