Oct24

Útgáfutónleikar Blokkarbarns í Tjöruhúsinu

Tjöruhúsið, Neðstikaupstaður, Ísafjörður

Hæ öll!

Um daginn var ég með útgáfutónleika í Mengi. Það var svo gaman að ég ætla að endurtaka leikinn í Tjöruhúsinu á Ísafirði.

Um að gera að gera kvöld úr þessu, bóka borð á Tjöruhúsinu á undan og gæða sér á dýrindis mat áður en tónleikarnir hefjast. Þá færðu líka frítt inná tónleikana!

Annars er auðvitað velkomið að mæta beint á tónleikana, þá kostar 2.500 inn ❤

Síðustu eintök vínylsins og Blokkarbarns-bolanna verða til sölu á tónleikunum.

Tónleikar eru hluti af dagskrá Veturnótta sem fer fram dagana 23. - 25. október.

Hlakka til að spila heima á Ísafirði, Ásta

Share